Komin úr útlegð

ÉG lifði af og vel það að vera ekki í tölvusambandi í meira en tvær vikur. Ég er mikið glöð. Við erum semsagt komin úr bústaðnum í Hestlandi. Vorum þar í tvær vikur og mikið höfðum við það gott. Við vorum stundum fjögur, stundum fimm og stundum mikið fleiri. Flest til borðs hjá okkur var 14 manns á laugardeginum um verslunarmannahelgina. Síðan var farið að bálkesti sumarbústaðaeigenda. Kisa var sendi heim eftir vikudvöl því hún hélt - ekki veit ég afhverju - að hún ætti að veiða mýs í matinn. Við vorum orðin þreytt á að rústa bústaðnum og elta þessa litlu ræfla með kústum og öðrum vopnum. Ég er búin að lesa slatta, sofa mikið, drekka allt of mikið, og éta bæði hollt og óhollt. Svo var potturinn notaður svo til daglega. Ekki leiðinlegt líf..... 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband