Halló heimur!

Jæja - bara byrjið að blogga aftur. Gaman gaman.

Þetta hefur verið afsakplega góð helgi. Fallegt veður og fallegt fólk og vinir. Við Gulli fórum í góðan göngutúr í fallega veðrinu í gærkvöldi og komum við hjá Systu - Þuríði - í Álfheimunum. Þar fengum við bjór á svölunum. Ekkert er betra en bjór á svölum í blómahafi.

Í dag hef ég verið heldur löt en ætla að drífa mig í sund á eftir. Gulli er niðrí Blómavali að kaupa í nýju pottana sem við keyptum í gær.

En annars ætla ég að vera dugleg að blogga í vikunni. Ég þarf að tjá mig um ævintýrið á Reykjalundi.

En eftir sundið á eftir ætlum við að horfa á tvo síðustu þættina af Six feet under. Þvílíkir þættir! Við höfum verið að treina okkur þá því ég tími hreinlega ekki að horfa á restina. Áðan horfðum við á þriðja síðasta þáttinn og ég grét og grét. Hvernig verð ég í kvöld?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er gaman að sjá blogg frá þér aftur.  Takk fyrir síðast og verið sem oftast velkomin á svalirnar.  Er líka að horfa á six feet under - frábærir þættir.  Kv.Systa

systa (IP-tala skráð) 21.6.2009 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband