Tónleikar með frábærum tónlistarmönnum til styrktar góðu málefni.

 

 

Tónleikar til styrktar hljóðfærakaupum fyrir börn í flóttamannabúðum í Palestínu:

TÓNLEIKAR
Tónleikar til fjármögnunar

á hljóðfærakaupum fyrir

börn í Balata flóttamannabúðunum

í útjaðri Nablus í Palestínu verða

haldnir í Neskirkju sumardaginn

fyrsta. Á tónleikunum munu Víkingur

Heiðar Ólafsson píanóleikari,

Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari

og Arngunnur Árnadóttir

klarinettleikari koma fram.

„Þetta kom til vegna þess að ég

fór til Palestínu um jólin og heimsótti

meðal annars þessar flóttamannabúðir

sem eru einar þær

stærstu á svæðinu,“ segir Þorbjörg

Sveinsdóttir, forsvarsmaður

tónleikanna. Hún segir mann í

sjálfboðavinnu kenna börnum að

spila á hljóðfæri í æskulýðsmiðstöð

sem rekin er í flóttamannabúðunum.

Kennt sé á eitt rafmagnsorgel

og tvær fiðlur. „Svo

mér datt í hug að halda tónleika til

að kaupa hljóðfæri handa þeim.“

Þá vonast Þorbjörg einnig til að

geta styrkt barnaskóla á svæðinu.

Tónleikarnir verða á fimmtudaginn

í Neskirkju og hefjast þeir

klukkan 20. Aðgangseyrir að tónleikunum

er 1.500 krónur en allur

ágóði rennur til söfnunarinnar. Þá

gefa allir þeir sem að tónleikunum

koma vinnu sína auk þess sem

Neskirkja gefur afnot af kirkjunni.

„Ef fólk vill styrkja þetta

frekar er hægt að leggja inn á

reikning 0311-13-700826, kennitala

280484-3429, en takmarkið er

að fylla kirkjuna,“ segir Þorbjörg.

- ovd

Tónleikar til styrktar hljóðfærakaupum fyrir börn í flóttamannabúðum í Palestínu:


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband