Slysadeildin

Hringt úr Vogaskóla klukkan 08:30 í gærmorgun. Anna Kristín hafði dottið í tröppum í skólanum og fann mikið til í fætinum. Mamman sleit fundi sem var að byrja og brenndi eftir barninu. Á slysadeildinni kom í ljós að brotnað hafði bein í ristinni á stelpunni minni. Og nú er hún í gifsi frá tám og upp að hné. Sem betur fer er þetta létt plast gifsi og hún mátti stíga í það rúmum klukkutíma eftir að það var sett á.

Hún er heima snúllan og lætur fara vel með sig enda búin á því í gærkvöldi. Hún tók verkjartöflur áður en hún fór að sofa og var sem betur fer verkjalaus í nótt. Enginn skóli samt í dag og á morgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Æh, skinnið.  Samúð...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 20.2.2008 kl. 10:28

2 identicon

Æ, það var leiðinlegt að heyra.  Ég bið voða vel að heilsa henni.

Kv. Systa.

Systa (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 14:38

3 identicon

æ æ en leiðinlegt

gott að hún á góða að og ég efast ekki um að það verður stjanað við prinsessuna,

batakveðjur

Díana 

díana (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 15:32

4 identicon

Æi elsku litla stelpan þessi. Þið mæðgur eigið alla mína samúð.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband