Tvö viðtöl - einn maður

Ég gluggaði í viðtölin við minn fyrrum yfirmann frá sjónvarpinu - Hrafn Gunnlaugsson. Ég er ánægð með að hann er að klippa Hvíta víkinginn aftur enda var myndin alveg hreinn hryllingur. Ég ætla að sjá nýju útgáfuna í bíó eiginlega bara af því að hann pabbi minn lék í henni á sínum tíma. Hann var í hlutverki  föður Emblu sem er aðal kvennhetja myndarinnar.

Og hann pabbi minn þessi elska hann dó 1999. Ég þarf líklega fullt af vasaklútum og ég ætla að taka stelpurnar mínar með. Sú eldri man óljóst eftir honum en sú yngir ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Ég man vel eftir honum og ég hef séð hann og hlustaði mikið á hann í útvarpinu snemma á 10. áratug. Hann var með þátt á rás 1 þar sem hann spilaði klassískar vínylplötur. Að sumar plöturnar voru rispaðar gerði ekkert til. það var svona stemmning. Ég hef líka heyrt hans fallega söng í útvarpinu.

Heidi Strand, 30.9.2007 kl. 18:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband