1.5.2007 | 20:28
Mánuðurinn framundan
Góður mánuður framundan.
Umferðarskólinn er kominn á fullt skrið í Reykjavík og Kópavogi. Lögreglan og leikskólakennarar fara í hvern skóla - 4 á dag - og hitta börnin. Síðan koma hin sveitarfélögin í kjölfarið.
Í næstu viku eru síðan tveir stórviðburðir; Júróvisjón og kosningar.
Ég er að vinna bæði við forkeppnina og aðalkeppnina og hef mikla trú á mínum manni. Gulli minn á fullu í kosningasjónvarpinu.
Þegar mesti hasarinn er liðinn hjá ætlum við til Barcelona í 5 heila langa hlýja daga.
Ég hef ekki komið þangað áður og hlakka mikið til. Ég auglýsin hér með eftir nöfnum á veitingahúsum og öðru skemmtilegu sem vert er að sjá og gera í Barcelóna - eða Barlesóna eins og sagt var í Perlum og Svínum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.