Baggalútur beittur.......

Umdeilt viðtal hunds við eiganda sinn
Morgeir, eða Moggi eins og hann er oftast kallaður, hefur orðið sífellt undirgefnari og meinlausari undanfarin misseri – og er alveg steinhættur að bíta.

Viðtal sem hundurinn Morgeir tók við eiganda sinn til fáeinna ára hefur vakið verðskuldaða athygli.

Í viðtalinu ræðir eigandinn opinskátt um nýafstaðna geldingu Morgeirs og sársaukafullan vígtannaúrdrátt – auk þess sem hann hótar honum óbeint að hætta að gefa honum að éta, standi hann sig ekki á yfirstandandi hlýðninámskeiði.

Þykir mörgum nóg um hvernig eigandinn kemur fram við saklausan málleysingjann – en þó blöskrar mönnum jafnvel enn fremur hvernig komið er fyrir Morgeiri greyinu, sem á sínum tíma þótti með illvígari varðhundum á landinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Baggalútur hefur oft bjargað geðheilsunni

Hólmdís Hjartardóttir, 28.10.2008 kl. 11:10

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og ljúfar kveðjur:)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.10.2008 kl. 16:33

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Morgeir hefur lútið í gras.

Helga Magnúsdóttir, 28.10.2008 kl. 19:40

4 Smámynd: Guðrún Hulda

Takk fyrir þetta

Lotning að eilífu,

Amen

Guðrún Hulda, 30.10.2008 kl. 11:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband