Ég hlakka til

Já mikið hlakka ég til að sjá stelpurnar mínar á laugardag!! Á morgun fljúgum við til Frankfurt og svo þaðan heim á laugardag.

Ég hef aldrei verið svona lengi í burtu frá þeim. 16 daga.

En það hefur ekki væst um þær. Bróður minn, bróðir Gulla, amma þeirra, frændur og frænkur og vinir hafa umvafið þær. En þær sakna nú samt mömmu sinnar og pabba - hann hafa þær ekki séð síðan 31. júlí.

En mikið hefur verið gaman og gott að vera með sínum - og bara sínum - í rúmar tvær vikur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Vá, 16 dagar! Ég fór einu sinni frá Úlla í fjóra daga og það munaði engu að það yrði okkur báðum að aldurtila.

Helga Magnúsdóttir, 4.9.2008 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband