Af notuðum fötum, skarti og skóm

Við mæðgur fórum í hús Félags íslenskra leikara í gær á æðislegan flóamarkað. Þar seldu nokkrar ungar og fallegar konur föt og fylgihluti sem þær eru hættar að nota.

Ég keypti tvær töskur af Maríu Hebu, hálsmen handa mér af Elmu Lísu, gallabuxur á Bryndísi sömuleiðis af Elmu Lísu og flottar sumar töflur af Silju,

Þarna var fjölmenn og gaman verður að vita hver útkoman verður. Þær stúlkur ætla að vera við sölustörf til klukkan 17:00 í dag. Kíkið endilega því úrvalið er mikið!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir komuna, það var frábært að fá ykkur fögru mæðgur!

María Heba (IP-tala skráð) 9.6.2008 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband