11.4.2008 | 14:04
Halló Akureyri - Akureyri here I come!
Á leið í höfuðstað Norðurlands á morgun.
Ég ætla að hafa umsjón með atkvæðagreiðslu í Söngkeppni framhaldsskólana sem fram fer annað kvöld. Flýg norður í fyrra málið og til baka á sunnudag.
Mikið hlakka ég til!!!
Eftir útsendinguna ætla ég síðan á tónleika Þursaflokksins sem verða á Græna hattinum klukkan 11:55 - hlakka ekki síður til.
Með mér á tónleikunum verða Kristófer frændi minn og kona hans María Heba sem er að leika fyrir norðan.
Athugasemdir
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.4.2008 kl. 18:03
Þú varst glæsileg í sjónvarpinu :)
Þóra Marteins (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 10:32
Þetta var flott keppni, góð skemmtun. Gaman að sjá sjálfstraustið og keppnisnadann í fólkinu.
Marta B Helgadóttir, 13.4.2008 kl. 17:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.