21.3.2008 | 12:29
Villimenn
Kórsystir mín skyldi bílinn sinn eftir niðrí bæ á miðvikudagskvöld og sótti hann á skírdag. Þegar hún kom að bílnum var búið að skíta á hann!!! Já það var mannaskítur á vélarhlífinni.
Ungur maður sem ég er kunnug er næturvörður á hóteli í miðborginni. Þar kemur fólk og mígur utan í hóteldyrnar og skiptir engu þó starfsmenn reyni að bægja þeim frá. Þá fá þeir gjarnan spurninguna "veistu ekki hver ég er?" Ég get ekki sklið að hland úr einum sé betra en hland úr öðrum.
Þetta er hræðileg villimennska - og hana nú!
Athugasemdir
Þvílíkur viðbjóður þetta eru sannkallaðir drullusokkar!
Það hefur örugglega gleymst að ala upp.
Heidi Strand, 21.3.2008 kl. 12:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.