Skólatöskur

 Skólarnir ađ hefjast og ekkert meira spennandi fyrir sex ára barn en ađ byrja í skóla. Keypt er ný skólataska og kannski líka nýtt pennaveski. Ţađ ţarf ađ velja töskuna vel. Hafa hana ţannig ađ hún passi barninu og sé ekki of stór.

En almáttugur minn! Ţurfa töskur sem sex ára börn nota ađ kosta 11 ţúsund krónur!

Mér finnst međ ólíkindum ađ hćgt sé ađ plata fólk ţannig ađ ţađ kaupi töskur sem eiga ađ bera einhver ósköp. Mín reynsla er sú ađ í a.m.k. 1. og 2. bekk ţá sé lítiđ annađ í töskunni en örfáir blýantar, ţunn plastmappa og nestisbox. Flest annađ er geymt í skólanum.

Eins eru ađstćđur slíkar a.m.k. hér á höfđuborgarsvćđinu ađ ekki er óhćtt ađ láta 6 ára börn ganga í skólann ţó svo ađ slíkt sé afar ćskilegt.

Niđurstađa mín er ţessi: rándýr skólataska međ tveim blýöntum og barn keyrt í skólann.

Látum ekki plata okkur!!!!!!!!


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

ég keypti svona dýra tösku í fyrra handa Finni.  Eins gott ađ hún dugi eitthvađ áfram...

En hann gengur nú reyndar alltaf sjálfur í skólann. 

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 15.8.2007 kl. 13:06

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Viđ fengum fínar töskur fyrir stelpurnar á 3.000 kall stykkiđ. Ţćr virđast alveg sambćrilegar viđ ţessar vinsćlustu hérna. En voru keyptar í Köben, sem skýrir auđvitađ verđmuninn. Íslendingar virđast láta bjóđa sér hvađ sem er. Og ég efast ekki um ađ verđlagningin hér á landi er undarleg. Verslunareigandi, sem tekur upp á ţví ađ flytja inn skólatöskur, lítur í kringum sig, sér ađ fólk kaupir töskur á 11 ţúsund og skellir ţeim verđmiđa á sínar töskur líka. Ţótt ţćr gćtu kostađ 3.000 kall.

Ţađ fer líka óskaplega í taugarnar á mér ađ sjá hverja heilsíđuauglýsinguna eftir ađra, ţar sem alls konar skóladót er auglýst og aldrei nokkurn tímann upplýst um verđ á nokkrum hlut.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 20.8.2007 kl. 10:58

3 identicon

ha? ţađ er nú víđa sem börn geta gengiđ í skólann, mín stelpa ţarf t.d. bara ađ fara yfir eina götu ţar sem er alveg svakalega góđ gangbraut, mjög áberandi međ stórum hrađahindrunum báđum megin ţannig ađ allir bílar stoppa.

Mín labbađi oft í skólann í fyrra 6 ára.. kannski ekki alveg fyrstu dagana en oft eftir ţađ!

Vćlan (IP-tala skráđ) 26.8.2007 kl. 15:47

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband